Jæja!

Þessi vefsíða er samansafn leiðbeininga, útskýringa og annars hjálparefnis sem ég hef smám saman útbúið fyrir nemendur.

Efnið er ekki hugsað sem sjálfstætt kennsluefni, né kemur það í stað fyrirlestra eða kennslubóka. Hér má hins vegar finna stutt og hnitmiðuð svör við ýmsum spurningum sem ég fæ iðulega.

Hverju ert þú að leita að?

Leiðbeiningar fyrir R

Skipanir, dæmi og leiðbeiningar fyrir gagnavinnslu og tölfræðilega úrvinnslu í R.

Skoða R-leiðbeiningar

Jamovi leiðbeiningar

Skref fyrir skref leiðbeiningar um framkvæmd ýmiss konar úrvinnslu í Jamovi; allt frá því að niðurhala forritinu, hagræða breytum, yfir í að framkvæma flóknari tölfræðilegar úrvinnslur.

Skoða Jamovi leiðbeiningar

Ályktunartölfræði

Upprifjun á grunnhugtökum ályktunartölfræði fyrir þau sem vilja rifja upp undirstöðuatriðin eða átta sig betur á tilteknu hugtaki.

Skoða ályktunartölfræði

Þessi vefur er lifandi

Efni bætist við eftir því sem nýjar spurningar og þarfir koma upp. Rekist þú á villu eða finnur ekki leiðbeiningar sem þú telur að ættu heima hér máttu endilega senda mér tölvupóst.

Ef þú finnur ekki það sem þú ert að leita að má einnig skoða “hjálp” undir hverjum hluta þar sem vísað er á nákvæmari hjálparsíður.

P.s. Efst í hægra horni er leitargluggi, takki til að kveikja á lestrarviðmóti og annar til að slökkva á dark mode. Þessir takkar eru undir aðalvalmynd ef þú ert í farsíma eða spjaldtölvu.